Costa Brava

Katalónía, Spánn

Costa Brava, einstakur staður með rafmagnað andrúmsloft!

Besti tíminn: Maí - september

Ferðalengd: 7 - 10 dagar

Flugtími: 4 1/2 klst

Verðbil: Frá 195.000kr.-

Costa Brava er einn af okkar uppáhalds stöðum! Þarna mun engum leiðast en Costa Brava er stútfull af afþreyingu og ekki skemmir hvað umhverfið er fallegt. Bærinn sem gist er í heitir Lloret de Mar og er fullur af ungu og hressu fólki sem vill skemmta sér. Flestir Íslendingar þekkja Spán og vita hvað landið hefur upp á að bjóða; sól, strönd, gott verðlag og frábært næturlíf. Yfir 100 næturklúbbar og barir eru í bænum og ættu allir því að finna stað við sitt hæfi.

Eins og áður var nefnt er heill hellingur af afþreyingum á svæðinu. Þar má nefna Catamaran siglingu, Water world, Go-Cart, Portaventura og margt margt fleira. Allt er þetta á svæðinu og flest í göngufjarlægð við hótelið. Þeir sem vilja nýta sólina og liggja í sólbaði er um nóg af ströndum að velja og getur verið upplifun að ferðast í bæina í kring og fara á ströndina þar.

Flogið er til Barcelona eða Girona og er það um klukkustunda keyrsla yfir á Lloret de Mar. Hótelin sem við bjóðum upp á eru á besta stað í bænum, nálægt ströndinni og næturlífinu. Á hverjum degi er svo dagskrá með afþreyingum sem hægt er að skrá sig í fyrir ferðina og sjá fararstjórarnir á svæðinu til þess að allt gangi vel og að öllum líði sem best.

Hápunktur ferðarinnar

  • Sólin og ströndin
  • Catamaran siglingin
  • Þemapartý með íslensku tónlistarfólki
  • Spænskir Tapasréttir
  • Dagsferð til Barcelona

Hefur þú áhuga á þessari ferð

Við vorum að fá nýja kaffivél! Kíktu í heimsókn og byrjum að skipuleggja útskriftarferðina fyrir þinn hóp með góðum fyrirvara.

Sendu okkur línu

Upplifanir í Costa Brava

Catamaran Sigling

Siglt um strendur Costa Brava! Sól, drykkir, tónlist og algjör stemning.

Kayak

Skoðaðu fallegar faldar strendur, hella og snorklaðu með fiskunum.

Water world

Einn besti vatnsrennibrautagarðurinn í Evrópu.

La Roca Outlettið

Öll helstu fatamerki á frábæru verði. Hér er hægt að gera góð kaup.

Skoðaðu aðra áfangastaði

Marokkó

Útskriftarferð

Sjá nánar

Portúgal

Útskriftarferð

Sjá nánar

Indígó

Skútuvogur 1b, 104 Reykjavík

414 1515

hallo@indigo.is

09:00 -17:00 alla virka daga

Senda fyrirspurn
Þessi vefsíða styðst við vefkökur.Með Því að smella á halda áfram samþykkir þú notkun á vefkökum.