Banh Mi & Banastuð

Víetnam

Verð frá650.000kr
TímabilHAFÐU SAMBAND
Fjöldi sæta20 sæti
Væntanlegt
Hafðu samband

UpplifðuBanhMi&BanastuðmeðIndígóClub

Banh Mi & Banastuð

Hvað er innifalið

GistingÖll gisting innifalin á vönduðum hótelum og gististöðum á leiðinni.
MaturMorgunverður alla daga. Vegan, glútenlaust og aðrar sérþarfir alltaf í boði.
LjósmyndariEinkaljósmyndari fylgir hópnum og tryggir að þú komir heim með ógleymanlegar myndir.
FararstjóriReyndir fararstjórar með hópnum alla leiðina — þú þarft aldrei að hafa áhyggjur.
FerðirAllur akstur á milli staða og til og frá flugvelli innifalinn.

Af hverju Indígó Club

Litlir hópar — Fólk á aldrinum 20–32 ára.
Reyndur fararstjóri með hópnum alla leiðina.
Handvalin gisting á góðum stöðum.
Allt skipulagt fyrirfram — þú mætir bara og nýtur.

Svona verður þetta

Dagur 1Hanoi
Velkomin til VíetnamVelkomin til Víetnam

Velkomin til Víetnam

Ævintýrið hefst í Hanoí, líflegri höfuðborg Víetnam.
Eftir lendingu tekur leiðsögumaður og bílstjóri á móti þér og ekið er beint í ævintýrin.

  • Hjólaferð (45 mín.) um Gamla hverfið (36 Old Quarter), þar sem göturnar bera enn nöfn iðnaðarmannanna sem þar störfuðu áður fyrr.
  • Eggjakaffi – bragðast á þessari sérstöku hanoísku kaffisérgrein á notalegu kaffihúsi.
  • Götumatarferð um Gamla hverfið þar sem heimamenn elda enn eftir aldagömlum uppskriftum.
Dagur 2Hanoi
Hanoi þræddHanoi þrædd

Hanoi þrædd

Dagurinn hefst með matreiðslunámskeiði og heldur svo áfram með kynningu á sögu og mannlífi Hanoí.

  • Matreiðslunámskeið: Farið á lókal markað til að versla hráefni, síðan lærir þú að útbúa hefðbundna víetnamska rétti undir leiðsögn heimamanna – og nýtur svo eigin matargerðar í hádeginu.
  • Valfrjáls jeppaferð (síðdegis): Skoðunarferð að grafhýsi Hồ Chí Minh, Ba Đình-torgi, forsetahöllinni og Bókmenntahofinu (Temple of Literature), auk ferðar um bakgötur Hanoí þar sem hversdagslífið blasir við.
  • Bjórferð um Tạ Hiện (valfrjálst, ekki innifalið) – upplifðu kvöldlífið í hjarta borgarinnar.

Gisting í Hanoí.

Dagur 3Ha Long Bay
Farið til Ha Long BayFarið til Ha Long Bay

Farið til Ha Long Bay

Siglt af stað inn í eina þekktustu náttúruperlu Víetnam.

  • Móttaka og innritun um borð í Catherine-skemmtiferðaskipið við Tuan Chau-höfnina, ásamt hádegisverði í boði reyndra kokka skipsins.
  • Luon-hellirinn heimsóttur og hægt að sigla á kajak milli tignarlegra klettanna.
  • Titop-eyja – tækifæri til gönguferðar eða sundsprett í tæru vatninu.
  • Sólsetursstund með léttum veitingum og lifandi tónlist, auk matreiðslusýningar þar sem gestir fá að spreyta sig á vorrúllum eða víetnömskum pönnukökum.
  • Kvöldverður um borð og valfrjáls kvöldskemmtun (smokkfiskveiðar, mini-golf eða dekurmeðferð).

Gisting um borð í skipinu.

Dagur 4Hue
Vaknað í bátnum og haldið til Hue

Vaknað í bátnum og haldið til Hue

Morgunstund á sjónum áður en haldið er til hinnar sögufrægu Hue.

  • Tai Chi-æfing á sólþilfari skipsins í dögun, fylgt eftir með léttum morgunverði.
  • Sung Sot-hellirinn, stærsti hellir Ha Long Bay og hluti af heimsminjaskrá UNESCO.
  • Brunch um borð áður en siglt er til hafnar.
  • Flogið síðdegis til Hue og tekið á móti á flugvellinum.
  • Götumatarferð í Hue um kvöldið.
Dagur 5Hue
KeisaraborginKeisaraborgin

Keisaraborgin

  • Bátsferð á Ilmánni (Perfume River) að Thiên Mụ-pagóðunni, einu helgasta trúarmusteri borgarinnar.
  • Keisarahöllin (Imperial Citadel), miðpunktur Hue-minjasvæðisins á heimsminjaskrá UNESCO.
  • Đông Ba-markaðurinn, þar sem hægt er að finna nánast hvað sem er – frá silki til gómsæts götumatar.
  • DIY: Gerð keilulaga hatta, ásamt hefðbundinni teathöfn – kynning á handverki og ró Hue.
  • Konungleg kvöldveisla þar sem gestum býðst að klæðast keisaralegum búningi.
Dagur 6Hoi An
Hin gullfallega Hoi AnHin gullfallega Hoi An

Hin gullfallega Hoi An

Ekið eftir strandlengjunni til hinnar gullfallegu Hoi An.

  • Stoppað við sjávarþorpið Lang Co og á Hải Vân-skarðinu fyrir myndatökur með stórbrotnu útsýni.
  • Gönguferð um Hoi An gamla bæ, á heimsminjaskrá UNESCO, þar sem japönsk brú, kínversk samkomuhús og gömul verslunarhús bera vitni um margbreytilega menningarsögu bæjarins.
  • TEH DAR-sirkussýning – æsispennandi bambus-sirkussýning innblásin af menningu hálendis Mið-Víetnam (lokað á mánudögum).
  • Frjáls kvöldstund til að njóta næturlífsins.
Dagur 7Hoi An
Gamli bærinn

Gamli bærinn

Dagur til að kafa dýpra í sveitasælu og hefðir svæðisins (valfrjáls dagsferð).

  • Hjólaferð til Trà Quế-kryddjurtaþorpsins, þar sem gestir taka þátt í garðyrkjustörfum eins og heimamenn og fá fótanudd að launum.
  • Siglt á Thu Bồn-fljótinu í hefðbundnum körfubátum til Cẩm Thanh-kókoshnetuþorpsins, þar sem sögur fiskimanna og fjölskyldna þeirra eru sagðar.
  • DIY luktagerð (45 mín.) – taktu eigin handverk með þér heim.
  • Frjáls kvöldstund til að njóta næturlífsins.
Dagur 8Hoi An
Hoi An gamli bær

Hoi An gamli bær

Dagur til að kafa dýpra í sveitasælu og hefðir svæðisins (valfrjáls dagsferð).

  • Hjólaferð til Trà Quế-kryddjurtaþorpsins, þar sem gestir taka þátt í garðyrkjustörfum eins og heimamenn og fá fótanudd að launum.
  • Siglt á Thu Bồn-fljótinu í hefðbundnum körfubátum til Cẩm Thanh-kókoshnetuþorpsins, þar sem sögur fiskimanna og fjölskyldna þeirra eru sagðar.
  • DIY luktagerð (45 mín.) – taktu eigin handverk með þér heim.
  • Frjáls kvöldstund til að njóta næturlífsins.

Gisting í Hoi An.

Dagur 8Da Nang
Da Nang - ströndin og bærinn

Da Nang - ströndin og bærinn

Hálfsdagsferð um Da Nang á leið að ströndinni.

  • Marmarafjöllin (Marble Mountains), tignarlegir kalksteinshólar sem gnæfa yfir borgarlandslaginu.
  • Linh Ung-pagóðan, friðsælt sjávarhof, og Cham-safnið með einstöku safni fornminja Cham-menningarinnar.
  • Bleika kirkjan og Han-markaðurinn heimsótt.
  • Frjáls tími á ströndinni og í næturlífinu.

Gisting á strandhóteli í Da Nang.

Dagur 9Da Nang
Slakað við ströndinaSlakað við ströndina

Slakað við ströndina

Hvíldardagur við eina fegurstu strönd Víetnam. Frjáls tími til að njóta strandarinnar, veitingastaða og næturlífsins í Da Nang.

Gisting á strandhóteli í Da Nang.

Dagur 10Nha Trang
Næturlest til Nha Trang

Næturlest til Nha Trang

Slakað á við ströndina áður en haldið er suður á bóginn.

  • Frjáls tími til að njóta strandarinnar.
  • Um kvöldið tekur við næturlestarferð til Nha Trang (um 10 klst.) í loftkældum svefnklefa.
Dagur 11Nha Trang
Leirböð og sveitin

Leirböð og sveitin

Komið til Nha Trang að morgni og haldið í sveitina.

  • Morgunverður á staðbundnum veitingastað eftir komu með lestinni.
  • Sveitaferð um Nha Trang: heimsókn í hefðbundið gamalt hús, hrísgrjónaakra og handverksvinnustofur þar sem gestir kynnast leirkerasmíði eða reykelsisgerð.
  • Slökun í I-Resort leirbaðinu – einstök upplifun í náttúrulegum leirlaugum.
  • Frjáls kvöldstund til að njóta næturlífsins.

Gisting í Nha Trang.

Dagur 12Nha Trang
Pagóður, kirkjur, margt að sjá

Pagóður, kirkjur, margt að sjá

Dagur til að njóta borgarinnar og strandarinnar að vild (borgarskoðun valfrjáls).

  • Long Son-pagóðan, með sinni stóru hvítu Búdda-styttu og útsýni yfir borgina.
  • Po Nagar Cham-turnarnir, eitt mikilvægasta menningarminjasvæði Cham-þjóðarinnar.
  • Hon Chong-klettarnir, sérkennilegar klettamyndanir og fallegt sjávarútsýni.
  • Nha Trang-dómkirkjan (steinkirkjan), gotnesk kirkja frá 1928.
  • Frjáls tími á ströndinni og í næturlífinu.

Gisting í Nha Trang.

Dagur 13Ho Chi Minh

Flogið suður til iðandi stórborgarinnar Ho Chi Minh (Saigon).

  • Notre Dame-dómkirkjan (aðeins skoðuð utandyra vegna viðgerða til 2027) og gamla pósthúsið.
  • Stríðsminjasafnið (War Remnants Museum), sem varpar ljósi á sögu stríðsins frá ólíkum sjónarhornum.
  • Vespuferð um kvöldið – Saigon After Dark: líflegar götur, staðbundinn matur og næturlíf borgarinnar upplifað á vespu með reyndum leiðsögumönnum.

Gisting í Ho Chi Minh-borg.

Dagur 14Ho Chi Minh

Valfrjáls heilsdagsferð í sögu og mannlíf.

  • Cu Chi-göngin, ótrúlegt völundarhús neðanjarðarganga sem skæruliðar notuðu í stríðinu.
  • Cho Lon, stærsta kínahverfi Víetnam, með blöndu af gömlum og nýjum verslunum og götumat.
  • Ben Thanh-markaðurinn, iðandi markaður með allt frá gæðaávöxtum til minjagripa.
  • Frjáls kvöldstund til að njóta næturlífsins.

Gisting í Ho Chi Minh-borg.

Dagur 15Ho Chi Minh

Valfrjáls heilsdagsferð út í sveitasælu Mekong-delta.

  • Vinh Long, þar sem gestir sigla á litlum árabátum um síki í ávaxtagörðum við undirleik hefðbundinnar tónlistar.
  • Heimsókn í þorp þar sem hrísgrjónapappír, kókoshnetunammi og popphrísgrjón eru búin til – smakk fylgir með tebolla.
  • Möguleiki á hjólaferð um sveitina.
  • Múrsteinsofnar skoðaðir, þar sem heimamenn móta leirkeramuni með höndunum.

Gisting í Ho Chi Minh-borg.

Dagur 16Ho Chi Minh

Síðasti dagurinn í Víetnam. Flutningur á flugvöllinn og flug heim með ógleymanlegar minningar í farteskinu.

Góður matur. Fallegar borgir. Allt sem þarf.

Góður matur. Fallegar borgir. Allt sem þarf.
Banh Mi & Banastuð

Ferðin í hnotskurn

Dagsetning

HAFÐU SAMBAND

Hópur

20 sæti · Allir velkomnir.

Flug

Flogið frá Keflavík. Millilending í Frankfurt.

Þú getur líka valið um að fljúga á eigin vegum.

Tilbúin að leggja af stað?

650.000kr
Hafðu samband →

Umsóknir eru afgreiddar í þeirri röð sem þær berast — tryggðu þér sæti í tíma.

Algengar spurningar