Kimchi og K-Pop

Suður Kórea

Verð frá850.000kr
Tímabil1-15. apríl 2027
Fjöldi sæta20
Hæfnikröfur
Bóka ferðina

UpplifðuKimchiogK-PopmeðIndígóClub

Kimchi og K-Pop

Hvað er innifalið

GistingÖll gisting innifalin á vönduðum hótelum og gististöðum á leiðinni.
MaturMorgunverður alla daga. Vegan, glútenlaust og aðrar sérþarfir alltaf í boði.
LjósmyndariEinkaljósmyndari fylgir hópnum og tryggir að þú komir heim með ógleymanlegar myndir.
FararstjóriReyndir fararstjórar með hópnum alla leiðina — þú þarft aldrei að hafa áhyggjur.
FerðirAllur akstur á milli staða og til og frá flugvelli innifalinn.

Af hverju Indígó Club

Litlir hópar — Fólk á aldrinum 20–32 ára.
Reyndur fararstjóri með hópnum alla leiðina.
Handvalin gisting á góðum stöðum.
Allt skipulagt fyrirfram — þú mætir bara og nýtur.

Frá morgni til kvölds

Dagur 1Seoul
Velkomin til Kóreu

Velkomin til Kóreu

  • Leiðsögumaðurinn okkar tekur á móti þér og keyrir þig beint á hótelið. Innritun á hótel og svo frjáls tími. Fullkomið til að hvíla sig eftir flugið eða stíga fyrstu skrefin í þessari stórfenglegu borg.
Dagur 2Seoul
Hjarta Seoul

Hjarta Seoul

  • Í dag kynnumst við sögu og bragði Seoul.
  • Gwanghwamun torg er stórt torg fyrir framan gömlu konungshöllina.
  • Gyeongbokgung höllin var aðalaðsetur kóreskra konunga fyrr á öldum.
  • Bukchon Hanok þorpið er gamalt hverfi með hefðbundnum timburhúsum.
  • Insadong er líflegt menningarstræti með búðum og handverki – frjáls tími þar.
  • Um kvöldið er matarrölt um Gwangjang markaðinn og Euljiro pojangmacha (götubari), þar sem þú prófar þrjá ólíka kóreska rétti og "anju", snarl sem borið er fram með drykkjum. Kvöldmatur innifalinn.
Dagur 3Seoul
Nútíð mætir hefð

Nútíð mætir hefð

  • Þennan dag er nóg í boði en öll dagskráin er þó valkvæð og getur þú bætt henni við eftir vilja.
  • Um morguninn getur þú valið að fara á HiKR Ground, þar sem þú kynnist K-pop og stafrænni myndlist, og rölt með Cheonggyecheon læknum í miðborginni – eða kóreskt matreiðslunámskeið (gegn aukagjaldi) þar sem þú lærir að elda hefðbundinn kóreskan mat. Þú getur líka bara sofið út ef þú vilt það frekar ;)

    Síðdegis eru aftur valkvæðir dagskrárliðir:
  • Verslunarferð á Myeongdong götunni, vöggu kóreskrar tísku. Öll helstu fatamerkin má finna þar, hvort sem þau eru kóresk eða alþjóðleg.
  • Slakandi höfuðnudd (Head Spa)
  • Hefðbundin kóresk nálastungumeðferð (bókun nauðsynleg).

    Um kvöldið mælum við með Jongro 3-Ga pojangmacha götunni fyrir þá sem vilja upplifa kóreska götumenningu á eigin spýtur.
Dagur 4Seoul
Útsýni og áhyggjulaus stund við ána

Útsýni og áhyggjulaus stund við ána

  • Um morguninn förum við upp í Seoul Sky, útsýnisturn með stórfenglegu útsýni yfir borgina. (Hægt að bæta við Sky Bridge skoðunarferð).
  • Síðdegis skoðum við Seongsu hverfið, einkar vinsælt hjá ungu fólki, og endum daginn með lautarferð við Han-fljótið. Teppi og borð fylgja, en snarl og drykki er hægt að kaupa í þeim fjölmörgu sjoppum og veitingavögnum sem eru á svæðinu. Njóttu útsýnisins, stemmingarinnar, og kóreskrar matargerðar.
  • Um kvöldið er tilvalið að heimsækja Itaewon, "alþjóðlega" hverfið með börum og klúbbum við allra hæfi.
Dagur 5Gangneung
Haldið á austurströndina

Haldið á austurströndina

  • Í dag ferðumst við frá Seoul til Gangneung við austurströndina (um 2,5 klst).
  • Á leiðinni stoppum við hjá Chum-Churum & Saero upplifunarsetrinu, sem kynnir kóreska drykkjarmenningu, skoðum Gyeongpo vatnið og röltum um Anmok kaffigötuna, þekkta fyrir notaleg kaffihús við ströndina.
  • Um kvöldið má njóta lífsins á Gyeongpo eða Gangmun ströndinni, þar sem finna má pojangmacha matarvagna beint við sjóinn.
Dagur 6Gangneung
Frjáls og fjörugur dagur

Frjáls og fjörugur dagur

  • Morguninn er frjáls.
    Fullkomið að sofa út, og ef þú vilt getur þú skráð þig í valkvætt svifflug (gegn aukagjaldi) yfir ströndinni.
  • Síðdegis skoðum við BTS strætóstoppistöðina, þekkta úr tónlistarmyndböndum, og heimsækjum Jumunjin ströndina og fiskmarkaðinn þar.
  • Um kvöldið mælum við með Gyodong New Town, vinsælu kaffihúsa- og skemmtanahverfi í Gangneung.
Dagur 7Busan
Markaðir og mannlíf

Markaðir og mannlíf

  • Að morgni tökum við KTX hraðlestina frá Gangneung til Busan (um 4 klst).
  • Í Busan skoðum við Jagalchi fiskmarkaðinn, stærsta sjávarafurðamarkað Kóreu, BIFF torgið, þekkt fyrir kvikmyndahátíðina í Busan, og Gukje markaðinn. Um kvöldið er Gwangalli strandgatan tilvalin fyrir þá sem vilja skemmta sér.
Dagur 8Busan
Útsýni, hraði og hlátur

Útsýni, hraði og hlátur

  • Morguninn byrjar á Haeundae Blueline Park, þar sem þú ferð í "Sky Capsule" – litla sporvagna með útsýni yfir ströndina.
  • Síðdegis er komið að Skyline Luge Busan, þar sem þú rennir þér niður braut á sérstökum kerrum og tekur svo lyftu upp aftur (Skyride).
  • Um kvöldið er Seomyeon þekkt fyrir bari og klúbba – vinsæll staður hjá yngra fólki.
Dagur 9Jeju

  • Við fljúgum frá Busan til eyjunnar Jeju (um 1 klst flug).
  • Síðdegis heimsækjum við Hwansang Gotjawal skóginn, sérstakt hraunskóglendi þar sem fótabað er innifalið, og O'sulloc tehúsið, þekkt fyrir grænt te ræktað á Jeju (hægt að bæta við sérstakri teupplifun gegn gjaldi).
Dagur 10Jeju
Sólarupprás og hafið

Sólarupprás og hafið

Að morgni klífum við Seongsan Ilchulbong, eldfjallatind sem rís upp úr sjónum og er á heimsminjaskrá UNESCO. Síðdegis kynnumst við Haenyeo – kóreskum kafarakonum sem kafa eftir sjávarfangi án súrefnistækja – hjá Seogwipo kafstöðinni (getur breyst vegna veðurs). Um kvöldið förum við á Cliff Cafe fyrir sólsetursdrykk og kvöldmat með útsýni yfir hafið (bókun nauðsynleg, matur og drykkir á eigin kostnað).

Dagur 11Jeju
Staðbundið bragð

Staðbundið bragð

Morguninn er frjáls
Við bjóðum upp á valfrjálsa fjórhjólaferð um utanvegaslóðir gegn aukagjaldi.

Síðdegis heimsækjum við Seogwipo Maeil markaðinn og förum í kajakferð um Soesokkak árósinn, kyrrlátt svæði umlukið klettum. Um kvöldið snæðum við saman "svartsvínakjöt", sérrétt frá Jeju, á lókal veitingastað.

Dagur 12Yeosu
Ströndin kallar

Ströndin kallar

Flug frá Jeju til Yeosu (um 1 klst). Síðdegis förum við með Yeosu sjávarkláfnum yfir höfnina og skoðum Odongdo eyjuna, þekkta fyrir gróður og útsýni (hægt að bæta við sólsetursiglingu gegn gjaldi). Um kvöldið mælum við með Pocha götunni, rómantísku götuhorni með litlum götubörum.

Dagur 13Seoul
Á heimleið til höfuðborgarinnar

Á heimleið til höfuðborgarinnar

Að morgni göngum við stutta leið á lestarstöðina í Yeosu og tökum KTX hraðlestina til Seoul (um 3 klst 15 mín). Innritun á hótel og svo frjáls tími það sem eftir er dags.

Dagur 14Seoul
Síðasta kvöldið í Kóreu

Síðasta kvöldið í Kóreu

Morguninn er frjáls – tilvalið að prófa flóttaherbergi (Escape Room), þar sem hópurinn leysir þrautir saman til að "flýja" úr læstu rými (gegn aukagjaldi). Síðdegis röltum við um Mangnidan-gil og Hongdae stræti, líflegustu hverfi Seoul fyrir ungt fólk, full af tísku, list og tónlist. Um kvöldið höldum við upp á ferðalokin með kveðjukvöldverði og söngstund í Noraebang (kóresku karókíherbergi) – tveir salir, 80 mínútur og tveir aðalréttir innifaldir. Hongdae er svo tilvalið fyrir þau sem vilja halda gleðinni áfram fram eftir kvöldi.

Dagur 15
Bless Kórea

Bless Kórea

Innritun úr hóteli og flutningur á Incheon flugvöllinn (ICN), þar sem heimferðin til Íslands hefst.

Kimchi og K-Pop

Ferðin í hnotskurn

Dagsetning

1-15. apríl 2027

Hópur

20 · Allir velkomnir.

Flug

Flogið frá Keflavík. Millilending í Frankfurt.

Þú getur líka valið um að fljúga á eigin vegum.

Tilbúin að leggja af stað?

850.000kr
Bóka ferðina

Umsóknir eru afgreiddar í þeirri röð sem þær berast — tryggðu þér sæti í tíma.

Algengar spurningar