Kína
Kína er ótrúlegt land sem hefur upp á margt að bjóða. Munurinn milli svæða er í raun ótrúlegur. Shanghai er nokkurs konar Metropolis, það sem maður fær upp í hausinn þegar maður hugsar um stórborg. Beijing hefur að geyma sögulegar minjar og er með greiðan aðgang að Kínamúrnum. Zhangjiajie er svo eins og önnur pláneta, með náttúruperlur sem fást ekki á neinum öðrum stað á jörðinni. Þrjár vikur í Kína eru góður tími til að upplifa sem mest án þess þó að fórna þægindunum sem landið hefur upp á að bjóða. Ferðumst á okkar hraða, upplifum og njótum.

Við lendum í höfuðborginni Beijing um klukkan 9:50 um morguninn. Við lendingu verður tekið á móti okkur og við höldum með rútu á hótelið sem er staðsett í hjarta Beijing.
Eftir langt ferðalag verður fólk eflaust misvel upplagt og því er engin formleg dagskrá þennan dag. Margir vilja sennilega leggja sig og hvíla sig eftir ferðalagið, á meðan aðrir vilja spóka sig um og fá fyrstu kynni af þessari stóru og miklu borg
Við mælum með að prófa Zhajiangmian-núðlur! Gómsætan núðlurétt sem er einn af vinsælustu réttum Beijing.







Mars/apríl 2027
21 dagur
30 sæti · Allir velkomnir.
Flogið frá Keflavík. Millilending í Kaupmannahöfn.
Umsóknir eru afgreiddar í þeirri röð sem þær berast — tryggðu þér sæti í tíma.