Gylltar strendur & pýramídar

Egyptaland

Verð frá650.000kr
Tímabil5-23. febrúar
Fjöldi sæta20 sæti
Hæfnikröfur
Bóka ferðina

UpplifðuGylltarstrendur&pýramídarmeðIndígóClub

Gylltar strendur & pýramídar

Hvað er innifalið

GistingÖll gisting innifalin á vönduðum hótelum og gististöðum á leiðinni.
MaturMorgunverður alla daga. Vegan, glútenlaust og aðrar sérþarfir alltaf í boði.
LjósmyndariEinkaljósmyndari fylgir hópnum og tryggir að þú komir heim með ógleymanlegar myndir.
FararstjóriReyndir fararstjórar með hópnum alla leiðina — þú þarft aldrei að hafa áhyggjur.
FerðirAllur akstur á milli staða og til og frá flugvelli innifalinn.

Af hverju Indígó Club

Litlir hópar — Fólk á aldrinum 20–32 ára.
Reyndur fararstjóri með hópnum alla leiðina.
Handvalin gisting á góðum stöðum.
Allt skipulagt fyrirfram — þú mætir bara og nýtur.

Skoðunarferðir og strandarsæla

Dagur 1Dahab
Koma til Egyptalands

Koma til Egyptalands

  • Vélin lendir 22:40 og rútan bíður fyrir utan. Stutt keyrsla, tékk inn á hótelið og svo er bara að sofna. Rauðahafið er handan við hornið og bíður eftir þér í fyrramálið.
Dagur 2Dahab
Snorkl á einkabát

Snorkl á einkabát

  • Heill dagur á sjónum. Rauðahafið er eitt tærasta snorklsvæði heims og þú sérð það um leið og þú stingur hausnum ofan í, kóralrifin byrja nánast við ströndina. Báturinn er bara fyrir hópinn og leiðsögumaður er með allan daginn.
Dagar 3-4Dahab
Frjálsir dagar í Dahab

Frjálsir dagar í Dahab

  • Ekkert fast á dagskránni. Dahab er pínulítill bær þar sem allt lífið er á strandgötunni og fólk situr á púðum á kaffihúsunum langt fram á kvöld.
  • Nóg að gera. Sumir munu vilja slaka á við ströndina í sínum frjálsa tíma. Aðrir vilja fara í fjallgöngu upp Sínaífjall (Þar sem Móses fékk boðorðin tíu),
Dagur 5Kaíró
Kaíró og pýramídarnir

Kaíró og pýramídarnir

  • Snemma á fætur, flug frá Sharm klukkan 09:05 og lent í Kaíró rétt eftir tíu. Þaðan er farið beint í Giza.
  • Pýramídarnir skoðaðir. Þarf eitthvað að kynna þá?
  • Hádegismatur á staðnum og um kvöldið siglt á Níl með kvöldmat um borð.
Dagur 6Kaíró
Gamla Kaíró

Gamla Kaíró

  • Egypska safnið fyrst, þar sem gullið og múmíurnar eru.
  • Svo út í Sakkara þar sem elsti pýramídi í heimi stendur, þrepapýramídinn, og Serapeum sem eru neðanjarðargrafir fyrir heilög naut.
  • Endað á mosku og röltað um.
  • Tveir leiðsögumenn með hópnum allan daginn
Dagur 7Aswan
Suður til Aswan

Suður til Aswan

  • Flogið til Aswan, syðstu borgar Egyptalands. Hún er hægari en Kaíró, hlýrri og Níl er breið og græn hérna. Eftir tékk inn er kvöldið laust.

Hugmyndir fyrir kvöldið:

  • Röltu í gegnum súkinn, kryddmarkaðurinn í Aswan er sá litríkasti í landinu
  • Sestu niður við Corniche og horfðu á felúkkurnar sigla framhjá
  • Kaffi og shisha á þakbar með útsýni yfir ána
Dagur 8Aswan
Abu Simbel

Abu Simbel

  • Lagt af stað eldsnemma og keyrt suður að landamærum Súdan.
  • Abu Simbel eru tvö risahof höggvin inn í fjall af Ramses öðrum, og á sjöunda áratugnum var allt klabbið sagað í sundur og flutt upp um sextíu metra þegar Nasser vatnið myndaðist.
  • Hádegismatur á leiðinni til baka.
Dagur 9Aswan
Felúkka og Fíleyjarhof

Felúkka og Fíleyjarhof

  • Siglt á felúkku, hefðbundnum egypskum seglbát sem hreyfist á hraða sem hentar deginum. Stoppað í núbísku þorpi þar sem húsin eru máluð í öllum litum, og komið við í Fíleyjarhofinu sem stendur á lítilli eyju úti í ánni.
  • Hádegismatur innifalinn.
Dagur 10Luxor
Lest til Luxor

Lest til Luxor

  • Fyrsta farrými með egypsku járnbrautunum, þrír tímar meðfram Níl og gott gluggasæti.
  • Í Luxor er farið beint í Luxor hofið sem stendur í miðjum bænum og er upplýst á kvöldin.
  • Hádegismatur í bænum og tveir leiðsögumenn með.
Dagur 11Luxor
Karnak og Konungadalurinn

Karnak og Konungadalurinn

  • Karnak er stærsta hofsvæði sem byggt hefur verið, súlnasalurinn einn er á stærð við fótboltavöll!
    Eftir hádegi er farið yfir á vesturbakkann í Konungadalinn þar sem faraóarnir voru grafnir og veggirnir eru enn í lit.

Valkvætt í boði: loftbelgur yfir Luxor í dögun. Þú ferð á fætur um klukkan fimm en útsýnið yfir hofin og eyðimörkina í sólarupprásinni er þess virði.

Dagur 12Hurghada
Yfir til Hurghada

Yfir til Hurghada

Keyrt frá Luxor að ströndinni. Hurghada er beint á Rauðahafinu og þetta er sá hluti ferðarinnar þar sem hraðinn dettur niður. Tékk inn, skipt í sundföt, búið.

Dagur 13Hurghada
Frjáls dagur við sjóinn

Frjáls dagur við sjóinn

Ekkert planað. Þú getur alveg eytt deginum á milli sundlaugar og strandar og engum finnst það skrítið.

Hugmyndir fyrir daginn:

  • Köfun, hérna er auðvelt að taka fyrsta tímann eða klára PADI skírteini
  • Fjórhjól út í eyðimörkina síðdegis
  • Dagsferð til El Gouna, síkjabær rétt norðan við með góðum börum
  • Kitesurf, vindurinn hér er nánast alltaf réttur
Dagur 14Hurghada
Paradise Island

Paradise Island

Einkabátur út í Paradise Island, heill dagur í snorkli með hádegismat um borð. Sandurinn þarna er hvítur og sjórinn nánast óeðlilega blár.

Dagur 15Hurghada
Síðasti frjálsi dagurinn

Síðasti frjálsi dagurinn

Ekkert á dagskránni. Notaðu hann eins og þú vilt.

Hugmyndir fyrir daginn:

  • Sæbátur eða parasailing ef þú vilt eitt síðasta adrenalínskot
  • Gamli bærinn í Hurghada, Sakala, fyrir markaðsrölt og síðustu gjafirnar
  • Bara strönd og ekkert vesen
Dagur 16Hurghada
Heim

Heim

Rúta á flugvöllinn og heim. Þú kemur til baka brúnn, þreyttur og með allt of margar myndir af steinum.

Gylltar strendur & pýramídar

Ferðin í hnotskurn

Dagsetning

5-23. febrúar

Hópur

20 sæti · Allir velkomnir.

Flug

Flogið frá Keflavík. Millilending í Manchester / Milan.

Þú getur líka valið um að fljúga á eigin vegum.

Tilbúin að leggja af stað?

650.000kr
Bóka ferðina

Umsóknir eru afgreiddar í þeirri röð sem þær berast — tryggðu þér sæti í tíma.

Algengar spurningar