Menntaferð til Spánar
Besti tíminn: Apríl - Nóvember
Ferðalengd: 3 - 7 dagar
Flugtími: 4 1/2 klst
Verðbil: 135.000 kr.-
Barselóna, gimsteinn Katalóníu þar sem hægt er að dásama byggingarlistina hans Gaudi, borða ekta tapasrétti og njóta góða veðursins á ströndinni.
Borgin er frábær fyrir hópa en mikið er af gistingum á svæðinu og samgöngur eru þæginlegar. Þar má finna mikið af ólíkum veitingastöðum og skemmtilega bari þar sem allir geta fundið sér eitthvað við hæfi.
Við bjóðum upp á fróðlegt námskeið um jákvæðan aga sem er leiðtoganámskeið þróað af Dr. Jane Nelsen og Lynn Lott byggt á verkum Alfred Adler og Rudolf Dreikurs. Námskeiðið er hannað til að kenna ungu fólki að verða ábyrgir, virðingafullir og úrræðagóðir meðlimir samfélagsins.
Við undirbúum öll skjöl og allar kvittanir sem þarf til þessa að sækja um styrk vegna ferðarinnar, hvort sem er hjá KÍ eða hjá öðrum stéttarfélögum.
Við vorum að fá nýja kaffivél! Kíktu til okkar í kaffi og byrjum að skipuleggja næstu ferð fyrir þinn hóp með góðum fyrirvara!